Haustferðin verður að þessu sinni farin á Suðurland. Lagt verður af stað frá Stakkahlíð kl. 8:50 stundvíslega. Fyrst liggur leiðin að Hellisheiðarvirkjun þar sem við njótum leiðsagnar um sýningu sem þar er. Þá verður haldið að Laugarvatnshellum þar sem einnig er boðið upp á leiðsögn og kaffi.
Hádegismatur verður snæddur á Flúðum þar sem „Farmers Bistro“ býður upp á sælkerahlaðborð.
Næsti viðkomustaður er Keldur á Rangárvöllum. Þar fáum við einnig leiðsögn og hægt er heimsækja kaffihús og safnbúð.
Að Odda á Rangár-völlum mun Friðrik Erlingsson taka á móti hópnum og segja m.a. frá Oddafélaginu og starfsemi þess á staðnum.
Selfoss er síðasti viðkomustaðurinn en þar heimsækjum við fyrst Hespu/Hespuhúsið þar sem Guðrún Bjarna-dóttir, hönnuður fugla- og flóruspilanna, tekur á móti hópnum.
Áður en haldið verður heim á leið verður snæddur kvöldverður á Hótel Selfossi. Aðalrétturinn verður þorskur með kartöflumús, sultuðum tómötum, jarðskokkum, gulrótum og choron (sem er tilbrigði við Béarnaisesósu með tómötum) og í eftirrétt verður eplakaka með vanilluís og eplamauki.
Verð fyrir Iðunnarfélaga er kr. 15.000, en kr. 18.000 fyrir aðra.
Innifalið í því er rútan, aðgangseyrir, leiðsögn og hádegis- og kvöldmatur. Ekkert gjald er tekið í Odda en þar er óskað eftir frjálsum framlögum til styrktar Oddafélaginu. Þau sem ekki borða fisk eða hafa fæðuofnæmi þurfa að láta vita af því við skráningu.
Þátttaka tilkynnist á netfangið rosat@hi.is fyrir föstudaginn 21. ágúst.
Munið að nýta ykkur kosningaréttinn og kjósa utan kjörstaðar.