Back to All Events

Rímnakveðskapur á Menningarnótt 22. ágúst

Skjól í skóginum - kl. 15:00 - 15:30 í Ráðhúsinu

Þrír félagar úr Kvæðamannafélaginu Iðunni kveða rímur í Ráðhúsinu á Menningarnótt. Þetta er hluti af viðburði sem kallast Skjól í skóginum sem Skógrækt Reykjavíkur heldur utan um. 
Rósa Þorsteinsdóttir mun m.a. flytja Skógarrímu eftir Sveinbjörn Beinteinsson og Emil Baur og Bára Grímsdóttir munu frumflytja glænýjan rímnaflokk eftir Bjarna Stefán Konráðsson sem heitir Rímur af heimsmeistarakeppninni í knattspyrnu 2026.

Kveðið ur kirkjuturni - 11.00 - 20.00 í turni Hallgrímskirkju

Hljóðgjörningur þar sem upptökur af íslenskum rímnakveðskap verða leiknar úr hátölurum í turni Hallgrímskirkju og hljóma yfir miðborg Reykjavíkur. Gjörningurinn er hugsaður sem virðingarvottur við Steindór Andersen, sem lést á síðasta ári, og aðra kvæðamenn og kvæðakonur sem hafa haldið íslenskri kvæðahefð á lofti. Kveðskapurinn verður spilaður í stuttum fimm mínútna lotum nokkrum sinnum yfir daginn og mun gefa gestum Menningarnætur tækifæri til að rekast óvænt á þessa einstöku hljóðupplifun í borgarrýminu. Þetta gerist á heila tímanum eftir að kirkjuklukkurnar hætta að hljóma klukkan 11:00, 12.00 og 13:00 og svo sama efni endurtekið klukkan 18:00, 19:00 og 20:00. 
Klukkan 11:00 og 18:00: 
Gústaf Daníelsson - „Meðan aðrir una sér“
Kristín Níelsdóttir - Númarímur „Dagsins runnu djásnin góð“
Þór Sigurðsson - „Svo var röddin drauga dimm“
Klukkan 12:00 og 19:00 
Jörundur Gestsson - „Örugglega væri vert“
Björg Björnsdóttir - „Sólin ekki sinna verka sakna lætur“
Steindór Andersen - „Hljóð á kvöldi vetrarvöld“
Margrét Hjálmarsdóttir - „Enginn kemur enginn sér“
Klukkan 13:00 og 20:00
Steindór Andersen - „Vorvísur“
Steindór Andersen - „Lágnætti“
Steindór Andersen - vísur e. Sveinbjörn Beinteinsson
Steindór Andersen - „Haustið nálgast“

Previous
Previous
May 9

BARNA- OG FJÖLSKYLDUÆFING

Next
Next
August 29

Haustferð Iðunnar laugardag 29. ágúst