Sunnudaginn 15. júní, kl. 15:00 ætla Iðunnarfélagar að hittast við Maríuhella í Heiðmörk og fara svo í gróðurreit félagsins við Grunnuvötn og njóta samverunnar í dásamlegu og friðsælu umhverfi.
Veðurspáin er ágæt, en vert að fylgjast með henni. Munið að taka með skjólfatnað og athugið að bekkirnir gætu verið blautir.
Rímnalögin munu hljóma í samkveðskap undir fuglasöng.
Mælt er með að fólk hafi með sér drykki, bolla, og einhverjar veitingar til að deila.
Eins og áður segir verður mæting er klukkan 15:00 við Maríuhella. Þaðan fara menn svo saman á þeim bílum sem eru hærri til hnésins. Maríuhellar eru rétt innan við hliðið að Heiðmörk – því sem snýr að Vífilsstöðum.
Við hvetjum ykkur til að bjóða vinum og vandamönnum með ykkur. Það eru allir velkomnir í Iðunnarlundinn við Grunnuvötn í Heiðmörk.