Back to All Events

1. des á Árbæjarsafni

Í tilefni fullveldisdagsins þann 1. desember efna Árbæjarsafn, Kvæðamannafélagið Iðunn, Þjóðdansafélag Reykjavíkur, Félag harmonikuunnenda í Reykjavík og Heimilisiðnaðarfélag Íslands til fögnuðar á Árbæjarsafni. Frítt inn og allir velkomnir.

Gestum gefst færi á að kynnast gömlu dönsunum, handverki, harmonikum, kveðskap, íslenskri glímu, þjóðbúningum, þjóðdönsum, þjóðlögum og þeim menningararfi sem iðkaður er af félögunum sem að viðburðinum koma auk þess að kynnast starfi félaganna. Á viðburðinum verða skemmtileg örnámskeið og kynningar þar sem hægt verður m.a. að læra grunnsporin í þjóðdönsum og kynnast kvæðalögum.

Reykjavíkurdeild Slysavarnarfélagsins verður með þjóðlegar veitingar til sölu í

Dillonshúsi til styrktar sínu mikilvæga starfi.

Í tilefni dagsins hvetjum við gesti til að mæta á þjóðbúning, en hægt verður að fá ráðgjöf varðandi búninganotkun og hvernig koma megi eldri búningum í notkun.

Dagskrá:

Lækjargata 4 / Neyzlan

18:00 - 22:00 - Heimilisiðnaðarfélag Íslands

Lækjargata 4 / Neyzlan (minna herbergi)

18:30 – Kvæðalagaæfing – umsjón Rósa Jóhannesdóttir

19:30 – Söngvaka – Umsjón Karl Hjaltason og Þorsteinn Björnsson

Landakot / ÍR húsið

18:00 – Þjóðdansafélag Reykjavíkur – Þjóðdansanámskeið

20:00 - 22.00 - Félag harmonikuunnenda í Reykjavík – Dansleikur

Previous
Previous
November 19

SÖNGVAKA

Next
Next
December 5

FÉLAGSFUNDUR