Í sal Tónskóla Sigursveins, Hraunbergi 2, 111 Reykjavík.
Dagskrá fundarins er afar áhugaverð:
Trausti Dagsson flytur erindi sem ber nafnið: Dagskrá fundarins er afar áhugaverð:
„mér finst það muni vera dauft heimilislíf, sem ekki er neitt hljóðfæri, og aldrei er súngið.“
Um tónlistarsamstarf Benedikts Jónssonar og Sigtryggs Helgasonar.
Benedikt Jónsson á Auðnum var mikilvægur heimildarmaður séra Bjarna Þorsteinssonar fyrir þjóðlagasafn hans. Einn helsti samstarfsmaður og vinur Benedikts var Sigtryggur Helgason, bóndi á Hallbjarnarstöðum í Reykjadal sem minna hefur farið fyrir í sögunni. Í erindinu verður fjallað um samstarf þeirra og sameiginlegan áhuga á sálmasöng og þjóðlögum. Einnig verður ljósi varpað á þátt Sigtryggs í þjóðlagasöfnun Benedikts og fjallað um tónlistarsköpun þeirra félaga.
Svanvængjuð þrá er ný ljóðabók eftir Valdimar Tómasson. Skáldið kynnir bókina og flytur nokkur ljóð úr henni.
Bragfræðihornið – Ragnar Ingi Aðalsteinsson fjallar um bragræði á léttum nótum.
Rímnakveðskapur – Leynigestir
Einnig verða fastir liðir: litla kvæðamannamótið og samkveðskapur í umsjón Rósu Jóhannesdóttur, litla hagyrðingamótið og afli Skáldu í umsjón Sigurlínu Davíðsdóttur.