Back to All Events

Landsmót kvæðamanna - Stemmu á Raufarhöfn

Landsmót kvæðamanna - Stemmu á Raufarhöfn

Föstudaginn 24. apríl - sunnudaginn 26. apríl

Kvæðamannafélagið Njóla heldur utan um landsmótið og hefur skipulagt áhugaverða dagskrá.
Iðunnarfélagar skrái sig á landsmótið með nafni, netfangi og símanúmeri hjá Rósu Þorsteinsdóttur á netfangið: rosathorsteinsdottir (hjá) arnastofnun . is og láti vita um allar máltíðir og sérþarfir í mat, en panta einnig sjálfir gistingu og mat hjá :

Hótel Norðurljósum: Sími 465-1233 - netfangið: info (hjá) hotelnordurljos . is og þurfa að taka fram hvort þeir hafi fæðuóþol, eru grænmetisætur eða vegan.

Einnig er hægt að gista í Hreiðrinu gistihúsi: Sími 782-9930 - netfangið: info (hjá) nesthouse . is

Þátttakendur eru hvattir til að panta sér gistingu sem fyrst og taka fram að þeir séu að fara á landsmót kvæðamanna. Æskilegt er að fólk staðfesti gistingar- og matarpantanir hjá hótelinu og gistiheimilinu ekki síðar en 17. apríl.

Dagskrá landsmótsins:

Tónleikar, námskeið og fyrirlestrar eru öllum opnir og ókeypis.

24. apríl, föstudagur
Kl. 18:00 - á Hótel Norðurljósum - Kvöldverður- Fiskisúpa m. brauði -3.200 kr
Kl. 20:00 - í Félagsheimilinu Hnitbjörgum
Kvæðatónleikar
1. Opnun: Halldóra Gunnarsdóttir segir örfá orð um Sigurbjörn Vilhjálm Vigfússon, vinnumann á Skinnalóni. Vísur Sigurbjörns kveðnar af félögum Njólu.
2. Kveðskapur aðildarfélaga Stemmu

25. apríl, laugardagur
Kl. 10:00 — 12:00 í Félagsheimilinu Hnitbjörgum
Kveðskaparnámskeið: Kvæðafólk og stemmur frá Norðausturlandi - Leiðbeinandi: Bára Grímsdóttir
Kl. 12:00 á Hótel Norðurljósum
Hádegisverður- Þorskhnakki, kartöflustappa, léttsteikt grænmeti - 5.900 kr

Kl. 13:00 í Félagsheimilinu Hnitbjörgum
Erindi: Hjörleifur Valsson segir frá fiðlu- og flautuvakningu í Þingeyjarsýslum. Með tóndæmum
Kl. 13:45
Erindi: Atli Freyr Hjaltason segir frá nýfundnum nótum og útgáfu á Danslögum Jónasar Helgasonar. Hjörleifur Valsson og Atli Freyr gefa tóndæmi
Kl. 14:30
Erindi: Guðrún Nordal heldur erindi um Guðmund Magnússon (Jón Trausta)
Félagar í Njólu kveða vísur hans

Kl. 15:15 Kaffi og meðlæti í Hnitbjörgum í boði kvæðamannahópsins Njólu
Kl. 16:15 Kvikmyndasýning í boði kvæðamannafélagsins Njólu:
„Frá ómi til hljóms — tónlistin á dögum Sveins Þórarinssonar amtskrifara"
Kl. 17:30 í Tankinum Þeir sem vilja kveða stemmur í Tankinum

Kl. 19:30 á Hótel Norðurljósum - Hátíðarkvöldverður – 7.900 kr – Skyrterta 1.900 kr
Kl. 21:00 í Félagsheimilinu Hnitbjörgum - Dansleikur við harmónikuleik Heimis S. Árnasonar

26. apríl, sunnudagur
Kl. 10:00 í Félagsheimilinu Hnitbjörgum - Aðalfundur Stemmu
Kl. 12:00 á Hótel Norðurljósum Hádegisverður fiskur og franskar 3.800 kr
Kl. 13:00 í Heimskautagerði - Halldóra leiðir gönguför upp í Gerðið

Previous
Previous
April 15

SÖNGVAKA

Next
Next
April 25

Landsmót kvæðamanna - Stemma á Raufarhöfn