Back to All Events

FÉLAGSFUNDUR

Í sal Tónskóla Sigursveins, Hraunbergi 2, 111 Reykjavík

Dagskrá fundarins er afar áhugaverð:

Bæringsrímur yngri og eldri Teresa Dröfn Freysdóttir Njarðvík flytur erindi: "Bærings rímur yngri eru enn sem komið er óútgefnar, en rímurnar eru ortar kringum 1500. Einnig eru varðveittar Bærings rímur eldri, frá 15. öld. Framan af héldu fræðimenn að Bærings rímur fagra væru einn rímnaflokkur, eða þar til Björn K. Þórólfsson skipti þeim upp í Bærings rímur eldri og yngri. Sagði hann að málstig rímnanna og skáldamál sýndu að um tvo flokka væri að ræða, frá sitthvoru tímabilinu. Hann benti þó ekki á nein dæmi kenningu sinni til rökstuðnings. Hér verður tæpt á varðveislusögu rímnanna, sem er fremur flókin og rýnt í máleinkenni þeirra og samsetningu. Við fyrstu sýn virðist málið með Bærings rímur vera fremur einfalt, þrjú handrit, tveir rímnaflokkar og eitt söguefni. En rímnaflokkarnir um Bæring fagra riddara eru að mörgu leyti sérstakir, til að mynda fjalla eldri rímurnar um seinni hluta sögunnar, en yngri rímurnar um upphaf sögunnar. Því meir sem Bærings rímur eru skoðaðar því flóknari verður heildarmyndin. Hér er ekki allt sem sýnist og verður hér reynt að varpa ljósi á þá áhugaverðu flækju sem Bærings rímur bjóða upp á." 

  • Kveðskapur úr BæringsrímumBára Grímsdóttir kveður brot úr rímunum.

  • Þjóðlögin og bragurinn í ýmsum myndumLinus Orri Gunnarsson Cederborg flytur erindi um hvernig hann hefur unnið með þjóðararfinn á undanförnum misserum.

  • Hrakningsríma – Emil Baur kveður brot úr Hrakningsrímu eftir Jón Guðmundsson.

  • BragfræðihorniðRagnar Ingi Aðalsteinsson fjallar um bragræði á léttum nótum.

  • Sumarósk - kvæði eftir Jón Steinsson sungið í samsöng við tvísöngslag.

  • Einnig verða fastir liðir: samkveðskapur í umsjón Rósu Jóhannesdóttur, litla hagyrðingamótið og afli Skáldu í umsjón Sigurlínu Davíðsdóttur.

Previous
Previous
April 8

KVÆÐALAGAÆFING

Next
Next
April 15

SÖNGVAKA