Í sal Tónskóla Sigursveins, Hraunbergi 2, 111 Reykjavík
Aðalfundur Iðunnar.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Eftir aðalfundinn og hlé hefst félagsfundur og skemmtidagskrá.
Háttatal - Guðmundur Steinn Gunnarsson mun segja frá háttatali sínu eða tónverkinu Clavis Metrica sem er einskonar háttatal án orða, það þar sem hljóðin í braginum fá að njóta sín. Um er að ræða tónverk fyrir 4 hljóðfæri sem kom út á geisladisk nýverið í flutningi Ensemble Adapter. Verkið er lauslega byggt á háttatali Sveinbjörns Beinteinssonar og vinnur með hrynjandi og flutningsmáta kvæðamanna.
Rímnakveðskapur - Þorsteinn Björnsson kvæðamaður flytur brot úr Mábilarrímum.
Einnig verða fastir liðir - Samkveðskapur í umsjón Rósu Jóhannesdóttur, Litlahagyrðingamótið og afli Skáldu í umsjón Sigurlínu Davíðsdóttur.