ÁRLEG HÁTÍÐ Í ÁRBÆJARSAFNI 1. DESEMBER.
Samstarfsverkefni Árbæjarsafns, Kvæðamannafélagsins Iðunnar, Þjóðdansafélags Reykjavíkur, Heimilisiðnaðarfélags Íslands og Félags harmonikuunnenda í Reykjavík.
KVÆÐALAGAÆFING OG SÖNGVAKA Þriðjudaginn 1. desember í Árbæjarsafni í Lækjargötu – minni salnum
Kvæðalagaæfing kl. 18:30–19:30
Á æfingunni verða kveðnar vísur og stemmur tengdar vetrinum, skammdeginu og jólunum. Umsjón hefur Rósa Jóhannesdóttir, formaður rímnalaganefndar Iðunnar.
Söngvaka kl. 19:30–20:30
Á þessari söngvöku verða sungin íslensk þjóðlög tengd jólahefðinni. Umsjón hafa Chris Foster formaður þjóðlaganefndar Iðunnar og Bára Grímsdóttir formaður Iðunnar.