Back to All Events

FÉLAGSFUNDUR

FÉLAGSFUNDUR föstudaginn 6. nóvember kl. 20:00 – 22:30

Í sal Tónskóla Sigursveins, Hraunbergi 2, 111 Reykjavík

ATH Bílastæðin eru GJALDSKYLD við Hraunberg 2. FRÍ bílastæði hinum megin við götuna og við Menningarmiðstöðina Gerðuberg.

Dagskrá fundarins er afar áhugaverð:

Eldsins ógn – Skaftáreldar og móðuharðindin. Höfundurinn Illugi Jökulsson fjallar um nýjustu bók sína í stuttu erindi. Skaftáreldar og móðuharðindin eru mestu náttúruhamfarir sem hér hafa orðið á sögulegum tíma. Fimmtungur landsmanna dó og þúsundir fóru á vergang; straumar flóttafólks bárust vítt og breitt um landið, bústofn féll unnvörpum og hungursneyð geisaði. Bókin verður til sölu.

Angurvaka Funi- þau Bára Grímsdóttir og Chris Foster flytja lög af nýju geislaplötunni Gárur, meðal annars frumsamið lag Báru við magnað kvæði um Móðuharðindin eftir eldklerkinn Jón Steingrímsson. Gárur cd verða til sölu.

Hagyrðingurinn Bjarni Stefán Konráðsson. Bjarni Stefán mun flytja frumsamið efni og segja frá tildrögum rímnaflokksins um heimsmeistaramót landsliða í knattspyrnu karla sem haldið var í Norður Ameríku síðastliðið sumar. Rímur af heimsmeistarakeppninni í knattspyrnu árið 2026. Flytjendur eru kvæðamennirnir Emil Baur og Atli Freyr Hjaltason. Heildarflutningur.

Bragfræðihornið – Ragnar Ingi Aðalsteinsson fjallar um bragfræði á léttum nótum.

Fastir liðir: m.a. Samkveðskapur í umsjón Rósu Jóhannesdóttur og Litla hagyrðingamótið og Skálda í umsjón Sigurlínu Davíðsdóttur.

Segulbönd Iðunnar verða til sölu á fundinum á aðeins 5.000 kr, frábær tækifæris- og jólagjöf.

Previous
Previous
November 4

Kvæðalagaæfing

Next
Next
November 18

Söngvaka