Back to All Events

FÉLAGSFUNDUR

Í sal Tónskóla Sigursveins, Hraunbergi 2, 111 Reykjavík
Dagskrá fundarins er afar áhugaverð:
Rímur á pappírsöld – erindi flutt af Katelin Marit Parson. Rímur eru áberandi partur af íslenska bókmenntaflórunni frá síðmiðöldum og alveg fram á 20. öld. Eitt það áhugaverðasta um rímur er hversu fjölbreytt yrkisefnið getur verið: allt frá glæstum riddurum til kaffikerlinga og óþekkra jarðálfa. Rímnaverkefnið Byltingin að ofan? Alþýðuvæðing rímna á lærdómsöld hlaut þriggja ára rannsóknarstyrk frá Rannsóknasjóð Rannís til þess að rannsaka rímurnar á tímabilinu 1550–1725. Hvers konar rímur orti fólk á þessu tímabili, og hvernig breyttust rímurnar með tilkomu pappírs?
Haustferð Iðunnar 2026. Anna Guðrún Torfadóttir formaður ferðanefndar hefur umsjón með þessum dagskrárlið þar sem afar skemmtileg og fræðandi ferð Iðunnar um Suðurland, þann 29. ágúst síðastliðinn, verður rifjuð upp í myndum, tali og tónum.
Söngvar eftir Bellmann – Þorvaldur Örn Árnason stýrir samsöng.
Bragfræðihornið – Ragnar Ingi Aðalsteinsson fjallar um bragfræði á léttum nótum.  
Fastir liðir: m.a. samkveðskapur í umsjón Rósu Jóhannesdóttur og litla hagyrðingamótið og Skálda í umsjón Sigurlínu Davíðsdóttur. 

Previous
Previous
October 7

Kvæðalagaæfing

Next
Next
October 21

Söngvaka