Back to All Events

FÉLAGSFUNDUR

Í sal Tónskóla Sigursveins, Hraunbergi 2, 111 Reykjavík

Dagskrá fundarins er afar áhugaverð:

  • Lírukassar - Guðmundur Guðmundsson flytur erindi um lírukassa. Hann á einn slíkan sem hann kemur með og leikur á.

  • Gömlu íslensku jólafólin - fróðleikur og ljótar sögur - Dagrún Ósk Jónsdóttir þjóðfræðingar á Ströndum rifja upp í máli og myndum næstum því gleymdar sögur um íslensku jólafólin. Hún og faðir hennar Jón Jónsson gáfu út samnefna bók fyrir jólin. Teikningar gerði Sunneva Guðrún Þórðardóttir.

  • Kóngulóarkvæði - Bára Grímsdóttir kveður brot úr kvæðinu sem segir frá Kónguló, en hún var dóttir Grýlu og tröllsins Snjólfs.

  • Ljóðaflutningur - Valdimar Tómasson flytur frumsamin ljóð.

    Einnig verða fastir liðir: litla kvæðamannamótið og samkveðskapur í umsjón Rósu Jóhannesdóttur, litla hagyrðingamótið og afli Skáldu í umsjón Sigurlínu Davíðsdóttur.

    Verið hjartanlega velkomin á alla þessa viðburði og við hvetjum ykkur til að taka með ykkur gesti.

Previous
Previous
January 7

KVÆÐALAGAÆFING

Next
Next
January 21

SÖNGVAKA