Kvæðamannafélagið Iðunn

Tilurð og tilgangur

Starfsemi

Stjórn og nefndir

Listin að kveða

Fréttabréf

Útgáfa


Lagboðar Iðunnar

Um lagboða Iðunnar

001-020

021-040

041-060

061-080

081-100


Bragfræði og háttatal

Formáli

Bragfræði

Rímnahættir

Rímnaþáttur

Háttatal

Orðaskrár

Eftirmáli









Starfsemi Iðunnar

Reglubundið starf Kvæðamannafélagsins fer fram á tímabilinu frá október og fram í maí. Á því tímabili eru haldnar kvæðalagaæfingar fyrsta miðvikudag hvers mánaðar. Á kvæðalagaæfingum er kennt að kveða, stemmur kenndar og æfðar.

Félagsfundur er síðan haldinn næsta föstudagskvöld á eftir með formlegri dagskrá, með fræðslu og skemmtun, kveðskap og söng.

Fundirnir og æfingarnar fara fram í Gerðubergi og hefjast kl. 20.

Allir eru velkomnir á æfingar og fundi félagsins og eru félagsmenn hvattir til að taka með sér gesti sem langar til að sjá hvað fram fer.

Fréttir

Janúarfundurinn og kvæðalagaæfing
Fyrsti fundur ársins verður haldinn á þrettándanum og að vanda verður kvæðalagaæfing miðvikudagskvöldið á undan, þ. 4. janúar. Að þessu sinni verður fundurinn í umsjá þjóðlaganefndar félagsins sem býður upp á fjölbreytta og skemmtilega dagskrá. Allir velkomnir á kvæðalagaæfingu og fund sem hvort tveggja hefst kl. 20 í Gerðubergi.

Jólafundur
Jólafundur Iðunnar verður haldinn í Gerðubergi föstudaginn 9. desember kl. 20. Allir velkomnir til að njóta fjölbreyttar dagskrár þar sem bæði verður ort og kveðið.

Skemmtilegur fundur
Annar fundur vetrarins var haldinn 4. nóvember. Þar var fjölbreytt og skemmtileg dagskrá og mikið kveðið – enda sá rímnalaganefnd um fundinn. Skálda veiddi líka margar nýjar vísur.

Syngjum og kveðum
Sunnudaginn 16. september kl. 14-16 verður á dagskrá söngstund í Gerðubergi. Syngjum og kveðum um ...fjöll, dali, ár og vötn, er yfirskriftin að þessu sinni. Gestum gefst kostur á að eiga saman góða stund, syngja og hlýða á söngva um fegurð náttúrunnar, ævintýrin sem gerast þar og fleira. Lögin eru blanda af íslenskum og erlendum alþýðulögum. Umsjónarmenn verða að þessu sinni Hilmar Örn Agnarsson og Björg Þórhallsdóttir. Þau sem koma eru m.a. Rósa Jóhannesdóttir, Geir Jón Þórisson, Sigríður Ása Sigurðardóttir og Gautur Garðar Gunnlaugsson, Veska Jónsdóttir og Rumyana Þorbjarnarson frá Búlgaríu, og sagnakonan Júlíana Þóra Magnúsdóttir. Gestir fá sönghefti með söng- og kvæðalögum fyrir fjöldasöng. Upplagt að taka börnin og barnabörnin með. Chris Foster og Bára Grímsdóttir halda utan um söngstundirnar í samvinnu við Kvæðamannafélagið Iðunni og Menningarmiðstöðina í Gerðubergi. Ókeypis aðgangur

Fundur og kvæðalagaæfing
Fyrsti fundur haustsins verður haldinn í Gerðubergi föstudagskvöld 7. október kl. 20. Eins og ævinlega verður kvæðalagaæfing miðvikudagskvöldið á undan á sama stað og tíma. Þið eruð öll hjartanlega velkomin!





© Kvæðamannafélagið Iðunn - idunn(hjá)rimur.is