Iðunn sótti um styrk til Þjóðhátíðarsjóðs vegna útgáfu á rímnalagasafni félagsins og hlaut einnar milljón króna styrk.
Vegna áforma stjórnar Iðunnar um framhald útgáfu á rímnalagasafni félagsins, var sótt um fjárstyrk til Þjóðhátíðarsjóðs. Umsókn Iðunnar var vel tekið þar og einnar milljón króna styrkur var veittur félaginu við hátíðlega athöfn í Þjóðmenningarhúsinu þann 1. desember síðastliðinn. Fjögur önnur félög og stofnanir fengu jafnháa styrki við þetta tækifæri en aðrir minna. Þessu ber að fagna vel, því grundvöllurinn fyrir starfsemi útgáfusjóðsins hefur þarna eflst mjög og gera má ráð fyrir því að fyrr gangi að ljúka við útgáfu lagboðanna en ætlað var.
Formaður stjórnar Þjóðhátíðarsjóðs er Margrét Bóasdóttir, söngkona. Aðrir stjórnarmenn eru: Eiríkur Guðnason, seðlabankastjóri, Jónína Michaelsdóttir, rithöfundur, Margrét K. Sverrisdóttir, borgarfulltrúi og Björn Teitsson, magister. Ritari sjóðsstjórnar er Sigfús Gauti Þórðarson, lögfræðingur.