Starfsemi
Reglubundið starf Kvæðamannafélagsins fer fram á tímabilinu frá október og fram í júní. Á því tímabili eru haldnar kvæðalagaæfingar og fundir.
Síðasti fundur fyrir jól og síðasti fundur vorsins eru ævinlega með öðrum brag en almennir félagsfundir; eru þá veglegri veitingar og dagskrá með örlítið öðru sniði en á almennum fundum félagsins.
Miðvikudagskvöld fyrir félagsfund eru haldnar kvæðalagaæfingar. Á kvæðalagaæfingum er kennt að kveða, stemmur kenndar og æfðar. Kvæðalagaæfingarnar eru óformlegri en félagsfundir og eru þá oft líflegar samræður og að sjálfsögðu hraustlega kveðið.
Allir eru velkomnir á æfingar og fundi félagsins og því eru félagsmenn hvattir til að taka með sér gesti sem langar til að sjá hvað fram fer.